Íris Þorsteinsdóttir
Ljósmyndirnar eru seldar í takmörkuðu upplagi af 5 og eru prentaðar á hágæða mattan ljósmyndapappír með endingargóðu bleki sem varðveitir liti og blæbrigði myndanna um ókomin ár.
Allar myndir eru prentaðar í Reykjavík og afhentar án ramma. en einnig er hægt að óska eftir sérsniðinni innrömmun gegn aukagjaldi. Minni myndir eru sendar flatar en stærri myndir í hlífðarhólki.
Stærð og verð með vsk og sendingargjaldi
A1 - 59,4 × 84,1 cm = 140,000 kr
A0 - 84.1 × 118.9 cm = 200,000 kr
Prentun og afhending tekur venjulega 3 - 6 virka daga.
FORT BAKER 03 – Merrill St. - SPEGLUN - 37°50′09″N 122°28′37″W
Fort Baker, Marin Headlands, Kalifornía
Myndin er hluti af ljósmyndaseríu sem tekin var í gegnum glugga yfirgefinna bygginga í Marin Headlands, rétt utan við San Francisco. Með endurspeglun í glerinu fanga ég tvö sjónarhorn samtímis, þar sem innra og ytra rými renna saman í einn myndflöt.
Hafðu samband beint við ljósmyndarann vegna kaupa: iristhors@gmail.com
